Nú er komin í verslanir bókin Gírafína og Pellinn og ég eftir Roald Dahl með stórkostlegum myndum eftir Quentin Blake.
Elli stóð oft fyrir utan gamla timburhúsið sem var til sölu og dreymdi um að opna þar sælgætisbúð – fyllta af heimsins besta nammi alls staðar að úr heiminum. Dag einn tók hann eftir merki í glugganum sem á stóð: „Seljað“ og í því flaug heilt baðkar út um gluggann og brotlenti með dásamlegum sprengikrafti á jörðinni. Þrír nýir eigendur voru komnir í húsið, þau Gírafína, Pellinn og Apinn sem kölluðu sig Stigalausa gluggaþvottagengið. Hefjast þá heldur betur ævintýri! Fjörug og fyndin bók eftir Roald Dahl fyrir grallara á öllum aldri!
Comments