top of page

Meinsemd er önnur bókin um lögreglumanninn Juncker og sjálfstætt

framhald Kölduslóðar sem kom út í maí 2021. Juncker er enn í

Sandsted þjakaður vegna martraða í kjölfar dauða föður hans. Þegar

lögmaður í bænum finnst myrtur í almenningsgarði bæjarins sogast

hann inn í umfangsmikla rannsókn sem hefur meðal annars þræði til

hans eigin fortíðar.

Í Kaupmannahöfn fær Charlotte konan hans, sem er blaðamaður,

nafnlausa vísbendingu: Hægt hefði verið að koma í veg fyrir

hryðjuverkaárásina skelfilegu í Kaupmannahöfn hálfu ári fyrr. Charlotte gengur á Juncker sem tók þátt í rannsókninni á hryðjuverkaárásinni en hann neitar með öllu að kannast við neitt slíkt. Hann óttast um líf sitt

og Charlotte fari hún að stinga nefinu í málið.

Signe, gamli félagi Junckers í Kaupmannahafnarlögreglunni er

tilkippilegri til að aðstoða blaðamanninn en hefur í mörg horn að líta.

Hjónaband hennar er komið að fótum fram og hún enn heltekin af

hefndarhug gegn manninum sem nauðgaði henni. Þegar í ljós koma

tengsl milli hryðjuverkamálsins og líks sem finnst í Kongelunden gefur Signe skít í allt saman og stingur sér út í djúpu laugina í leit að

sannleikanum.

 

Lesa fyrsta kafla bókarinnar hér.

Meinsemd

SKU: 9789935948830
2.999krPrice
Tax Included
    bottom of page