BFG eða Bergrisinn frómi góði er vænn risi sem býr í Risalandi ásamt níu öðrum hræðilegum risum. Dag einn verður á vegi hans Soffía, 8 ára stúlka sem er munaðarleysingi. Með þeim tekst góður vinskapur þrátt fyrir að risinn tali svolítið undarlega. Þau ákveða að koma böndum yfir hina risana ógurlegu, með dyggri aðstoð Englandsdrottningar.
Fyndin, hjartnæm og spennandi saga úr smiðju sagnameistarans Roalds Dahl. Kvikmynd gerð eftir bókinni í leikstjórn Stevens Spielberg fór sigurför um heiminn. fyrir fáum árum.
BFG er nú kominn í nýrri útgáfu með dásamlegum myndskreytingum eftir Quentin Blake.