Matthildur eftir Roald Dahl er dásamlega fyndin og skemmtileg saga. Í bókinni er að finna óborganlegar persónur á borð við foreldra Matthildar, þau Hrapp, bílasala með meiru og Myllu, ókrýnda bingódrottningu. Þar er líka Krýsa, hálfgerð tröllkona, sem er skólastjóri Skellivallaskóla og notar vægast sagt óvenjulegar uppeldis- og kennsluaðferðir.
Söngleikurinn Matthildur var nýlega sýndur í Borgarleikhúsinu við miklar vinsældir, enda er Matthildur óviðjafnanleg.