Risastóri krókódíllinn er með snjalla áætlun á prjónunum, að eigin mati að minnsta kosti. Hann ætlar að finna safarík börn til að éta. Öll dýrin í skóginum verða hneyksluð og reið út í krókódílinn og benda honum á að borða heldur ber og hnetur. Honum finnst það alveg fráleit hugmynd. Tekst Risastóra krókódílnum ætlunarverk sitt? Hér er snilldarverk úr smiðju sagnameistarans mikla, Roalds Dahls, á ferðinni.